Tangó og ég. Ástar-/haturssamband

Ég hef mjög lengi verið heilluð af tangó, man t.d. að mér fannst þessi dans í Scent of a Woman sem sjá má hér fyrir neðan alveg ótrúlega flottur og sexí og ég veit ekki hvað:

Horfði á þetta núna áðan áður en ég setti þetta inn, verður að segjast að þetta á ekki mikið sameiginlegt með þeim tangó sem ég er að læra hér. En einnig höfðar tónlistin mikið til mín og tónlist tónskáldsins Astors Piazolla hefur verið í uppáhaldi í held ég bráðum 15 ár.  Ástríður, melankólía, dapurleiki, meiri ástríður og flottheit einhvern veginn það sem fylgir ímyndinni um tangó, bæði tónlist og dans. Ég hef tvö meginmarkmið hér í Buenos Aries, að læra spænsku og tangó. Hvort tveggja er á réttri leið, það er á hreinu. En við bæði á ég í ástar-/hatursambandi og þó sínu meira við tangóinn. Upplifði það svo sterkt í gær, fór fyrst í prívattíma hjá henni Vivi. Ég leigi hjá henni herbergi og hún er líka kennarinn minn. Yndisleg kona og frábær kennari.  Hér fyrir neðan má sjá hana dansa (tek fram að hún er prófessjonal og þetta er sjóv sem þau eru með þarna, sjaldnast er þetta svona flott!!)

Nema hvað, ég er í tímanum og hún endurtekur sömu hlutina aftur og aftur og aftur. Þannig lærir maður nefnilega. Það er eitt að heyra og annað að geta látið kroppinn finna það og framkvæma á sekúndubroti án þess að hugsa um það. Gekk bara vel. Fór svo á practica á eftir sem er í raun hóptími og við unnum með eitt sérstakt spor.Vorum 6 konur og þrír strákar þannig að mennirnir fengu heldur betur að vinna fyrir laununum sínum (sem eru náttl. að dansa við svona fallegar konur!). Ég dansaði bara nokk vel einn dans og upplifði virkilega gleði og hamingju. VAr að njóta mín og dansins. Svo kom næsti dans og þar tókst mér að klúðra öllu sem hægt er að klúðra og ég varð svona líka fokvond og fúl út í sjálfa mig og gat ekki notið þess sem eftir var tímans. Ekki oft sem fýkur svona í mig en það gerði það þarna. En þetta er líka það sem gerir þetta skemmtilegt, það að það þarf virkilega að hafa fyrir því að ná leikni í þessum dansi og stundum gegnur bara allt á afturfótunum. Bara að bíta á jaxlinn, leyfa sjálfum sér að gera mistök (alltaf verið virkilega góð í því) og halda áfram.Því að ég er líka áfram virkilega heilluð og langar til að halda áfram að dansa þennan dans miklu miklu lengur en ég hyggst dvelja hér (að þessu sinni a.m.k.)

 

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s